Wednesday, November 12, 2014

Allt annað líf



Hérna eru tvær myndir af mér - Önnur er frá því þegar ég hélt upp á þrítugsafmælið mitt í maí og hin er nokkura daga gömul . . . töluverður munur á mér , enda að nálgast það að vera orðinn 17 kg léttari en ég var í allt sumar og fram í september.

Fólk spyr mig oft hvort maður sé í megrun eða hvort maður sé bara hættur að borða ... sem er náttúrulega algjör þvæla, því þótt ég sé að ná fínum árangri þá er ég alveg að borða og það töluvert mikið. Lykilatriðið í þessari lífsstílsbreytingu er það að ég varð hreinlega að hætta að borða sykur og hveiti og finna einhverjar aðrar lausnir þannig að ég gæti a.m.k notið þess að fá mér að borða.

Í stað þess að panta mér pizzur um helgar, þá útbúum við hjónin sérstakan pizzubotn sem inniheldur ekkert hveiti og engan sykur, og þar af leiðandi getum við leyft okkur að hafa eitthvað gott álegg á henni, eins og beikon og fleira. 

Gos er eitthvað sem ég sakna ekki , því ég hef aldrei verið neitt sérstaklega háður gosi , nema þá kannski Pepsi Max , en ég tók strax þá ákvörðun, sama þótt að Pepsi Max sé sykurlaust, að ég myndi losa mig við þann óþverra , því það voru einhver efni í því sem að lét mig vilja meira og meira og meira af Pepsi Max, þannig að ég hætti því algjörlega .... vatnið dugar mér ágætlega og fínt að grípa í Sítrónutopp eða Egils Kristal ef manni langar í einhverja tilbreytingu.

Ég reyni að halda í þá þumalputtareglu að borða alltaf á þriggja tíma fresti sem byrjar alveg á morgunmat og það heldur út daginn og fram að kvöldmat, venjulega 5 máltíðir á dag. Ég er nánast alveg hættur að fá mér eitthvað á kvöldin, eins og ég gerði oft, og hef átt mun betri svefnvenjur eftir að ég hætti að fá mér eitthvað að borða eftir kvöldmat , þó svo að ég reyni að fara aldrei svangur að sofa.

Ég fer a.m.k fjórum sinnum í ræktina á viku, en við hjónin pössum okkur á því að taka þetta skynsamlega og erum við því bara 30-40 mínútur að hámarki í ræktinni hverju sinni . Við erum ekki að fara þarna til að sprengja okkur alveg , en ekki heldur til þess að hanga og spjalla við fólk , við förum bara þarna með okkar markmið og erum að ná þeim ágætlega. Það þarf ekki alltaf að vera í ræktinni í heillangan tíma, ekki nema maður sé að stefna að einhverri vaxtarrækt eða einhverju slíku, sem við erum alls ekki að gera.

Ég reyni að borða alltaf mjög fjölhæft fæði, en ég hef alltaf haldið morgunmatnum mínum þó alveg eins og finnst mér hann vera langmikilvægasta máltíðin. Morgunmaturinn minn samanstendur af : Vanillu skyr.is - Rúsínum - All Bran - Frosnum bláberjum(eða öðrum berjum) .... þetta hittir alltaf beint í mark , þarna er ég að fá prótein, trefjar og kolvetni sem koma mér í gang yfir daginn. 

Hádegismaturinn minn er mjög mismunandi , fer voða mikið eftir því hvort að ég er að vinna eða hvort ég er heima. Ef ég er að vinna , þá reyni ég að panta mér fiskrétt frá veitingahúsum bæjarins sem bjóða upp á þannig þjónustu fyrir fyrirtæki hér á Króknum , en ef ég er heima þá er hádegismaturinn oftast þrjár hrökkbrauðssneiðar (með engu hveiti) með sinnepssósu, gúrku, tómutum, osti og eggjum (stundum kjúklingaáleggi) og nóg af vatni með (eins og alltaf). 

Um miðjan daginn ,eða á milli 15-16 fæ ég mér oftast banana , hef lært það að það er ótrúlega þægilegt að grípa í einn banana, hann hittir í mark alveg og nær að seðja hungrið alveg fram að kvöldmat.

Kvöldmaturinn er alltaf skemmtilegastur , því núna getur maður leyft sér ýmsilegt, en ekki bara hakkað í sig þurrar kjúklingabringur og grænmeti. Lykilatriðið er bara að gæta hófs og borða skynsamlega , en ekki troða sig út eins og maður hefur gert í gegnum tíðina. 

Í gær var t.d grýta sem að Jóhanna eldaði sem samanstendur bara af hakki, hrísgrjónum , fullt af grænmeti, tómatvörum , kryddum og vatni. Auðvelt og þægilegt og þrælgott. Svo erum við dugleg að elda kjúklingarétti og fiskrétti, fiskibollur, hakkrétti og kjötrétti ... og notum svo helgarnar til að dekra við okkur og eldum eitthvað gott , eins og hægeldaðan lambabóg, steikarsamlokur og fleira í þeim dúr... því maður verður að leyfa sér eitthvað aðeins þó svo að maður reyni að halda sér á beinu hollu brautinni ávallt.

Það sem hefur bjargað okkur alveg í þessu öllu saman, er það að við höfum verið dugleg að finna "aðrar lausnir" sem innihalda engan sykur og ekkert hveiti , eins og sykurlaus súkkulaði, hveitilaus brauð og annað í þeim dúr... þetta er bara allt annað líf fyrir okkur og við gætum ekki verið sáttari við það eins og þetta gengur ennþá.

En þetta er barátta ... þetta er ekki auðvelt og baráttan er upp á hvern einasta dag, því það er stutt í þessar gífurlegu fíkn sem matur er fyrir okkur . Og með jólin á næsta leyti , þá þurfum við að einbeita okkur alveg sérstaklega og undirbúa , því það verður ekkert sælgætisát og gosþamb á okkur hjónum ... ó nei.

Jólin eru sennilega efni í næsta blogg :)

Lifið heil .

kv. Binni

3 comments:

  1. Vel gert Binni.
    Varaðu þig samt á því að vörurnar frá MS eru margar hverjar löðrandi í sykri.
    Mæli með að lesa vel innihaldslýsinguna á skyr.is :)

    ReplyDelete
  2. Núna er maður búinn að stúdera næringarfræði og búinn að ljúka kúrsum í því þannig að maður er alveg með þetta allt 100%. Ég kaupi eingöngu Vanillu Skyr.is sem er sykurlaust (þó með gervisætu) , get ekki borðað neinar mjólkurvörur með sykri þar sem mér þykja þær viðbjóðslega sætar og hreinlega vondar :)

    ReplyDelete
  3. Virkilega vel gert Binni!
    Langar að benda á að allar Skyr.is tegundið með rauðri rönd eru kolvetnaskertar og þ.a.l. ekki með viðbættum sykri :)
    T.d. Banana og Mangó og ástaraldin.. bæði geðveikt gott!

    ReplyDelete